posemaster p

Fokk já.....

26.08.2008 12:11:17 / Posi

Blogcentral.is

Ég er gjörsamlega orðinn bensínlaus!

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.07.2008 10:36:16 / Posi

aaaaaaaaahhhhhhhh

Sumarfrí
Tölvunotkun
Football Manager
Sól
Stuttbuxur
Ást
Kæfa
Uppvask
Sænskar Kjötbollur
Hiti
Sund
Sjónvarp
Rambo
Gönguferðir
Rigning
uTorrent
Big Brother Uk
Bíltúr
Grenivík
Suðurnes
Hlýrabolur
PSP
NBA Live 06
Sturta
Brailískt vax
Pizza
Bumba
Internet
NBA
Jakobína
Súrsæt sósa
Sófi
Bakverkir
Ipod
Derhúfa
Ostur og sulta
Söknuður
Svefn
Gleði
Blogg
......sitt lítið af hverju!


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.07.2008 18:27:10 / Posi

Lífsmark? Já, eitthvað.......

http://www.atomapparel.co.nz/images/products/el%20panels/heartbeat_lg.gif

Fyrir þá sem eru farnir að velta sér uppúr því hvort ég sé virkilega á lífi, þá er ég sprell lifandi og sjaldan verið ferskari. Frá því að ég byrjaði að blogga, ég held það hafi verið 2003eða2004, hef ég aldrei misst úr heilan mánuð. Það er einmitt að gerast núna, júní bara alveg tómur þetta árið. Svona er þetta bara.

Ekki að það hafi ekki gerst neitt í júní. Jújú þvert á móti, það var eiginlega bara alltof mikið að gera. Ég var náttúrulega tvær vikur á Spáni um mánaðarmótin Maí-Júní. Þar var ég blindfullur allan tímann og man ekkert eftir þeirri ferð. Þegar ég kom heim var ég svo sendur í meðferð. Nei reyndar ekki. Ég var alls ekki duglegur að drekka úti og það kom svo sannarlega í bakið á mér þegar ég kom heim.

Daginn eftir að ég kom heim vaknaði ég um morguninn og ákvað að bregða mér á salernið. Sú ferð endaði í baðkarinu. Í þann mund sem ég hugðist teygja mig starfsmanninn steinleið yfir mig og ég datt afturábak ofaní fokkin bsaðkarið. Ég náði að standa upp og ætlaði mér að leggjast uppí rúmið mitt en endaði á gólfinu. Næsta skref var ferð uppá sjúkrahús í sjúkrabíl þar sem ég fékk eina 4 lítra af vökva beint í æð. Ég hafði orðið fyrir svo miklum vökvaskort að ég gat ekki staðið í lappirnar. Var þó bara eina nótt á sjúkrahúsinu áður en ég var útskrifaður.

Síðan þá hef ég bara verið á kafi í vinnunni frá morgni til næstum kvölds. Svo var það auðvitað EM sem tók mikinn tíma frá manni, ég uppgötvaði gamla FM leikinn minn aftur sem stelur öllum tíma frá manni, ég er orðinn háður Big Brother uk, ég eignaðist líka PSP tölvu og er það ekki til að bæta ástandið, ég datt í alltof miklar hugleiðingar um nba nýliðavalið á tímabili og margt fleira. Það er samt eitthvað notalegt við að hafa nóg fyrir stafni, samt er ég hálfpartinn farinn að bíða eftir seinni hluta sumarfrísins.

Að lokum ætla ég að gefa gott shout out á góða félaga.
-Birkir fyrir að eiga afmæli fyrir tveimur dögum, og útskriftina um daginn. Konan hans fær að sjálfsögðu líka kveðju.
-Árni Steinar fyrir gott boð um heimsókn á hótelið. Fjölskylda hans fær líka fyrir þakkir fyrir gestrisni.
-Keli fyrir að hlaupa hálft maraþon á Ak um daginn. Ég fokkin rústaði þér í NBA leiknum kall.
-Jói Hermanns fyrir að vera að skemmta sér á Roskilde. Skál Hómí.
-Addi Mazzzzze fyrir að vera hnakki. Og að vera uppáhalds spjallarinn minn á thorsport.is. Og auðvitað fyrir félagsskapinn á hótelinu.
-Haddi fyrir litla bifvélavirkjann sem er á leiðinni.
-Atli fyrir að vera sundlaugarperri.
-Game fyrir að vera svalasti mannfjandi í þessum heimi. LAX við erum að bíða.
-Dúi fyrir að vera rauðhærður. Rhodos, get ekki beðið eftir heimildamyndinni.
-Þrölli a.k.a. MoppmasterBopp fyrir að ætla bjóða mér í grill á eftir.

Þá er þetta að verða komið. Píz.

» 4 hafa sagt sína skoðun

19.05.2008 17:31:34 / Posi

C.R.E.A.M.

Er eitthvað betra en að koma heim úr vinnunni eftir langan dag, láta renna í heitt bað, setja dvd með gömlum Wu Tang Clan myndböndum í tækið og bara slaka á? Nei hélt ekki. Djöfulli var maður mikill gangster í 8.bekk þegar maður hlustaði ekki á neitt annað en þessa snillingum, 24/7. Enter the Wu-Tang er án efa besta rappalbum allra tíma og löngu orðinn algjör klassík. Ótrúlegt að það séu orðin 15 ár síðan þessi plata kom út.

http://users.wpi.edu/~bhatch/images/Wu-Tang%20Clan.jpg

Lög eins og C.R.E.A.M., Method Man, Shame on a nigga og Wu Tang Clan ain´t nuthing ta F´ wit eru ennþá jafn góð og þegar ég heyrði þau í fyrsta skipti. Ég man að eftir að ég fékk bílpróf þá var það fyrsta sem ég gerði það var að brenna eintak af Enter the Wu-Tang til að hafa í bílnum. Svo var ég búinn að spila diskinn svo mikið að hann var orðinn ónýtur og þá var bara að gera annað eintak. Það eintak er ennþá í bílnum, þótt bíllinn sé ekki lengur Blackmobile. Blackmobile R.I.P. Ol Dirty Bastard R.I.P.

Það var synd að þessir höfðingjar skyldu ekki gefa út meira saman. Sólóferlar þeirra hafa verið ansi misjafnir og er ég meiri aðdáandi þeirra sem ein heild. Reyndar hef ég verið að fíla það sem Ghostface Killah hefur verið að gera undanfarið og eru síðustu plötur hans fáránlega góðar. Fishscale og The Big Doe Rehab eru meistaraverk. Ghostface er líka alveg fáránlega svalur. Reyndar var Method Man alltaf í uppáhaldi hjá mér og er enn þótt að hann geri lítið annað en vera skakkur þessa dagana.

http://www.youtube.com/watch?v=GDfToFcJ2J4

Ég ætlaði ekki einu sinni að skrifa svona mikið, ætlaði bara að minnast á baðið og slökunuina yfir Wu. En ég bara elska Wu Tang svo mikið. Cash, Rules, Everything, Around, Me. C.R.E.A.M. Get the money. Dollar, dollar bill y'all  píz Pose.


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.04.2008 22:07:45 / Posi

Ruslpóstur

http://www.davar.net/INTERNET/REFER/JUNKMAIL.JPG

Pósthólfið mitt er alveg að gera útaf við mig þessa dagana. Pósthólfið er bara orðið stútfullt af ruslpósti. Á hverjum einasta degi fæ ég skeyti frá ókunnugu fólki sem hefur áhuga á að kynnast mér. Ég verð bara að segja að þeir sem eru að senda mér þennan ruslpóst virðast vita meira um mig en ég sjálfur. Sum boðin eru ansi freistandi á meðan önnur eru bara stórfurðuleg.


Sem dæmi þá heldur maður sem heitir Benjamin því fram að ég þurfi á víagra að halda. Hann vill sem sagt bjóða mér helling af bláum pillum á frábæru verði. Ég hef ekki orðið var við þetta vandamál. Hins vegar ef ég verð var við slíkt í framtíðinni þegar ég verð orðinn gamall, sköllóttur og krumpaður þá er nokkuð ljóst að herra Benjamin verður mér efstur í huga.

http://www.theage.com.au/ffximage/2008/03/29/majviagra_narrowweb__300x420,0.jpg

Einhver rjómi sem heitir Andrew segist geta gert mig alveg ógeðslega heitan eða eins og segir í póstinum ,,So hot no woman can resist  you“. Kona sem ég man ekki hvað heitir vill svo meina að ég verði svo heitur að jafnvel kærastan mín geti ekki tekið hendurnar af mér. Ég held mér líði bara ágætlega eins og ég er núna.

Annabel sem hefur áhuga á mér veit greinilega ekki að ég sé harðlofaður, vill koma mér á deit með einhverjum heitustu gellum sem fyrir finnast. Önnur kona vill að ég kynnist stelpum í gegnum netið, sumar þeirra eru meira að segja frá Íslandi. Stelpur úr Gullbringusyslu virðast allavega vera til í að gera ýmislegt í gegnum netið. Freistandi en Nei takk.

,,How to improve your sexlife“. Gella sem heitir Roselie er með öll svörin við því. Á sama tíma vill hann Charlie tvöfalda lengdina á starfsmanninum mínum. Charlie sama og þegið. Hvers vegna hefur þetta lið svona mikinn áhuga á því sem gerist í svefnherberginu hjá mér?

http://internetmillionaireblueprint.com/images/really-fast-money.jpg

Ég hef reyndar ekki enn verið svo heppinn að einhver út í heimi hafa eignast fullt af peningum og hafa skyndilega ákveðið að gefa mér allan peningin af því að viðkomandi er að deyja úr krabbameini. Er enn að bíða eftir því. Þekki heldur engan frá Nígeríu sem er ólmur í að þrefalda peningana mína. Verð að fara komast í samband við slíkan mann.


Ætlar þetta lið ekki að átta sig á því að ég er ekkert að fara svara þessum póstum. Þannig að ef þið eruð að lesa, Charlie, Roselie og Andrew, hættið að senda mér ruslpóst. Kveðja Posemaster.


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.04.2008 15:54:36 / Posi

Jerry Springer

http://www.lovefilm.com/lovefilm/images/products/3/22203-large.jpg

Ég var búinn að gleyma því hvað ég var mikill Jerry Springer fan. Ég er búinn að vera horfa á fullu á Jerry Springer á netinu og elska hann. Um daginn fann ég líka gamlar Jerry Springer spólur heima hjá pabba sem hann hafði keypt í ameríkunni á ferðum okkar þangað fyrir 10 árum síðan. Þá var bara ekkert annað í sjónvarpinu þarna úti. Jerry Springer all day. Svo var auðvitað Sýn með þetta fyrir nokkrum árum.

http://www.newsday.com/media/photo/2008-01/35022871.jpg

Það er svo gaman að því hvað fólkið er brenglað í þessum þáttum. Auðvitað setur maður spurningamerki við hversu raunverulegt þetta sé. En fólkið er í alvöru með sítt af aftan. Ég er ekki að grínast, 70% þeirra sem koma í þennan þátt eru með sítt að aftan. Helmingur karlanna eru með nauðgaramottur og helmingurinn af konunum eru í raun og veru karlmenn, klæðskiptingar eða kynskiptingar.

Það besta við þetta er að maður hefur séð svona lið í bandaríkjunum, sem er bara alveg útúr kortinu. Mér finnst að íslenskir vörubílstjórar ættu frekar að einbeita sér að því að safna í gott sítt að aftan og horfa á góða spólu af Jerry Springer í stað þess að standa í þessum mótmælum. Í bandaríkjunum eru allavega alvöru truckers, ekki bara spikaðir gæjar með möl á milli eyrnanna.

http://static-09.dailymotion.com/dyn/preview/320x240/924151.jpg

Besta vídjó sem sést hefur í sjónvarpi er náttúrulega þegar dvergarnir eru að slást í Jerry Springer. Óborganlegt vídjó sem er löngu orðið classic.

Ég er farinn að horfa á Jerry og safna í sítt að aftan. Kveðja Pjé.

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.04.2008 22:38:30 / Posi

Besta mynd allra tíma

http://im.sify.com/sifycmsimg/apr2008/14649786_Street-Kings_330x234.jpg

http://www.imdb.com/title/tt0421073/

Þessi mynd hlýtur að vera besta mynd sem gerð hefur verið. Annað væri hneisa enda skartar hún besta og svalasta rappara í heimi, The Game. Hann leikur harðjaxlinn Grill, gæti heldur ekki verið svalara nafn á karakternum hans. Ég get varla beðið eftir að sjá þessa mynd og á eftir að horfa á hana með Hurricane skóna í annarri og jafnvel í hinni líka. Svo leikur líka Chicago rapparinn Common í henni líka sem skemmir ekki fyrir enda eðalnáungi.

http://www.exclaim.ca/images/up-street_kings.jpg

Annars bara píz. Péééssssi.

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.04.2008 17:08:15 / Posi

Brauðrist skal það vera

http://www.tomwet.de/shop/catalog/images/Totenkof-Toaster-Skull.jpg

Þessi hlutur nefnist brauðrist. Bara svo það sé á hreinu. Það vill nefnilega svo til að annar hver maður sem verður á vegi mínum virðist halda að þetta sé ristavél. Það er ekki til neitt sem heitir ristavél, nema kannski einhver vél sem býr til ristar í niðurföll eða eitthvað álíka. Veit það samt ekki en brauðrist skal þetta allavega vera.

Ég er búinn að vera leiðrétta fólk markvisst undanfarið og alltaf heldur fólk því fram að þessi ákveðni hlutur heiti ristavél. Fólk fer alltaf að segja að þetta apparat framkvæmi það að rista brauð. Það er hárrétt en það er ekki þar með sagt að þetta þurfi að heita ristavél. Þetta er bara nafn sem fólk hefur búið til um hlut sem heitir í raun og veru allt annað.

Ég gæti hugsanlega sætt mig að hluta til við að þetta sé ristabrauðsvél. Hins vegar stoppa ég þá við þann hluta að kalla þetta vél. Þetta er jú rist sem hitnar og verður þess valdandi að brauðið hitnar og að lokum brennur. Engin vél hérna í gangi. Einhver hefur þá notað þá rökfærslu að stígvél ættu þá ekki að heita stígvél af því að þau hafi ekki vélbúnað. Ekki kvarta við mig, ég fann ekki upp það orð.  Stígvél er ekki eina orðið sem hefur bjánalegt heiti. Handklæði gæti t.d. verið hanski.

Ég hef verið að skoða þetta grimmt undanfarið, bæði búinn að grúska á netinu og er greinilegt að það eru fleiri en ég í þessum ágætis pælingum. Fann meira að segja að á síðunni marco.is eru menn að selja eitthvað sem heitir ristavél, hér er augljóslega um vörusvik að ræða þar sem ekkert er til sem heitir því nafni. En það sem verður ofaná er að orðið ristavél er ekki til nema í huga fólks. Finn það allavega ekki í orðabókinni. Þannig að þeir sem ætla að fá sér ristað brauð, vinsamlegast notið brauðristina.

Kveðja Pjé.......já mig langar í svona hauskúpu brauðrist!


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.03.2008 16:45:58 / Posi

Lengsti dagur sögunnar

http://www.teachwithmovies.org/guides/longest-day-DVDcover.jpg

Í gær var lengsti dagur sögunnar, eða svo fannst mér. Ekki að það hafi verið útaf því að það var föstudagurinn langi, þessi dagur var bara langur. Maður er náttúrulega bara í ruglinu þegar maður vaknar kl. 9 á svona frídegi. Fór samt út í göngutúr fyrir hádegi og í gærkvöldi þegar ég var að fara að sofa þá fannst mér eins og það væru svona tveir dagar síðan ég fór út að labba. Ég var eiginlega farinn að bíða eftir því að dagurinn yrði búinn.

Það er í rauninni ekkert að gera á svona frídögum. Ekki hafði ég heldur gaman af ballettinu sem var í svona 7 klukkutíma í sjónvarpinu í gær. Ef það væri ekki fyrir háskólaboltann þá væri ég líklegast búinn að missa það algjörlega.

Dagurinn í dag hefur verið mun betri. Vinna fyrir hádegi og tjill eftir hádegi. Fólk má samt ekki misskilja mig, það er mjög fínt að vera í fríi. Körfuboltinn heldur líka áfram í dag og á morgun. Himnaríki þessi körfubolti.

Jæja Pjé.


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.03.2008 19:27:45 / Posi

Körfuboltanördablogg

Ég er orðinn alltof mikill körfuboltanörd. Ég eyði örugglega svona tveimur klukkutímum á dag í að lesa körfuboltasíður. NBA.com er þar efst á blaði. Íslensku síðurnar auðvitað, karfan.is, kki.is ofl. Svo skrifa ég reglulega á thorsport.is og fylgist með heimasíðum annarra félaga. Espn.com er mikið lesin, NY Post líka þótt mitt lið NY Knicks sjúgi allfeitan, Insidehoops, draftexpress og nba blogg á vísir.is eiga líka sinn sess í mínu lífi.

http://weblogs.newsday.com/sports/basketball/knicks/blog/home/tiblogs/public_html/sports/basketball/knicks/blog/davidlee.jpg

Í vetur er ég búinn að vera djúpt sokkinn í fantasy leik á nba.com sem heitir pick one challenge. Þar á að velja einn gaur á hverju kvöldi og svo safnar maður stigunum sem leikmennirnir skila. T.d. Ef ég vel LeBron James og hann skorar 40 stig, tekur 10 fráköst og gefur 8 stoðsendingar þá fæ ég 58 stig fyrir hann. Það má bara velja hvern gaur einu sinni þannig að maður þarf að vanda valið. Nú er langt liðið á tímabilið og ég er að verða uppiskroppa með góða leikmenn. Svo ef leikmaður er meiddur eða meiðist í leik þá er maður í djúpum og fær lítið eða jafnvel engin  stig. Eftir svoleiðist kvöld langar mann helst að skalla í gegnum rúður. Blessunarlega hef ég staðið mig frábærlega og um tíma var ég í 30. Sæti í heiminum. Núna er ég í 120 sæti. Þess má geta að margar milljónir spila þennan leik.

http://media3.washingtonpost.com/wp-dyn/content/photo/2008/02/06/PH2008020604889.jpg

En ekki nóg með að ég sé niðursokkinn í þetta þá er ég að fara í einangrun næsta mánuðinn. Ástæðan er March Madness eða Marsfárið á góðri íslensku. Þetta er úrslitakeppnin í bandaríska háskólakörfuboltanum þar sem 65 bestu lið bandaríkjanna etja kappi. Þessi tími er heilagur í mínum augum og væri réttast að taka sér frí þennan tæpa mánuð sem keppnin stendur yfir. Keppnin hefst í byrjun næstu viku. Ég er orðinn frekar spenntur. Þori samt engan veginn að spá fyrir um úrslit, þetta verður barátta milli UCLA, N-Carolina, Kansas, Memphis, Texas og kannski einhverra fleiri liða.

Sem betur fer hef ég ekki náð að sökkva mér í evrópuboltann, þá væri pottþétt að ég væri í tölvunni allan daginn. Ég horfi nefnilega á allt þetta dót í tölvunni. Ég elska internetið. Fyrir áhugasama er hægt að fá aðgang að Marsfárinu á ncaasports.com. Þar er hægt að sjá alla leikina og æskilegt að sækja um strax til að fá VIP passa.

Linkur hér.....

http://www.ncaasports.com/mmod

Ég ætla ekki að hafa þetta körfuboltanördablogg mikið lengra. Pjé


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.02.2008 19:13:05 / Posi

sndoubleop

Ég er orðinn hryllilega slappur í þessu bloggi. Svo er komið eitthvað nýtt umsjónarkerfi fyrir bloggið þannig að ég veit ekkert í minn haus.

Af því að ég hef ekkert sérstaklega gáfulegt að segja þá ætla ég að setja inn mynd frá því 1.febrúar. Ég ætlaði alltaf að setja þessa mynd inn en það var eitthvað bögg í kerfinu, núna get ég það hins vegar.

Þetta er tekið út um gluggan hjá mér. Þetta er þegar það snjóaði stanslaust og allt fór á bólakaf. Planið hjá okkur var frekar pakkað af snjó og Eydís var búin að festa sig einu sinni á því. Svo einn daginn þegar við komum heim ætluðum við að reyna að skella okkur upp á planið. Nei var ekki þessi ljóti grái bíll búin að leggja beint í innkeyrsluna inná planið okkar. Innkeyrslan er sem sagt þarna vinstra meginn við ljósastaurinn. Þvílíkur asni, þarna var hann í tvo tíma og var ekkert að spá í að hafa lagt fyrir innkeyrsluna af fjölbýlishúsi. Þetta endaði með að hringt var á lögguna og þá kom gæjinn skömmustulegur út úr einu húsinu og færði bílinn.



Á myndinni sést líka blár Avensis (þar sem fólkið stendur) sem er fastur. Hann þurfti nefnilega að komast í burtu af planinu og vegna gráa bílsins komst hann ekki og ákvað að reyna að fara yfir grasið. Það gekk ekki vel. Við vorum í hálftíma að ná að losa hann. Hann hætti við að reyna að komast útaf planinu og komst greiðlega útaf því þegar grái bíllinn var farinn. Það er ótrúlegt hvað sumir hugsa bara ekkert.

Kveðja Pjé.


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.02.2008 22:10:31 / Posi

That´s a huge bitch.........

Töluvert hefur reynt á andlega heilsu mína undanfarið. Sérstaklega á meðan tölvan mín var biluð í rúma viku áður en hún var svo úrskurðuð ónýt.  Nú er ég kominn með nýja tölvu og líður mun betur. Það er bara dauði að komast ekkert í tölvu á dimmum og þungum  tíma og eins og Jan-Feb er. Er ekki hægt að leggja niður þessa mánuði?

Svo keyptum við líka prentara. Eftir tæpa þrjá tíma við að koma kvikyndinu í gagnið var ég við það að skalla prentarann. Ég er alveg hryllilega óþolinmóður og þoli ekki svona vesen. Til allra lukku komst hann í gagnið á endanum og geðheilsu minni er nokkurn veginn borgið.

Þessa dagana er ég fastur í að pæla í hávöxnu fólki. Stórt fólk er skrítið. Það tekur mikið pláss, skyggir á útsýni og notar yfirleitt fáránlega stóra skó(skíði). En það er svosem ásættanlegt að vera stór strákur, en að vera risavaxinn kvennamaður......orðum það bara svona, ég er hræddur við stórt kvennfólk!

Í fréttunum í kvöld var sýnt myndbrot með 15 ára stelpu í Bandaríkjunum sem er um tveir metrar á hæð. Reyndar lítur hún út fyrir að vera strákur en ég leyfi hverjum að dæma fyrir sig. Það er bara ekkert eðlilegt við svona vöxt. Svo notar hún skó nr. 16 (það er í kringum svona 50 í evrópskum stærðum), Yao Ming notar skó nr.18. Ég 11.

http://www.youtube.com/watch?v=UO-iH1UniSc

Í WNBA er svo kelling sem heitir Margo Dydek. Bara nafnið gefur til kynna að hún sé frík. Hún er pólsk og stendur í 218cm hæð og vegur 101kíló. Ég myndi líklegast pissa á mig af hræðslu að sjá svona stóra konu face-to-face.

http://www.wnba.com/playerfile/margo_dydek/index.html

Þegar ég var í Barcelona í útskrifarferð urðu á vegi mínum tvær hávöxnustu kellingar sem ég hef séð með berum augum. Þær litu út fyrir að vera blakspilarar frá austur-evrópu. Ég er alveg pottþéttur á því. En allavega þá vissi ég ekki hvernig ég ætti að haga mér þegar ég sá þessar risa konur, langaði helst að benda og hlægja en náði að halda aftur af mér. Þetta var allavega minnistætt.

Ég er hræddur við stórt fólk, helst konur. Ég hef samt ánægju af því að þegar ég sé stórt fólk, þá þarf ég alltaf að hoppa á það. Ég veit ekki af hverju ég geri þetta, finnst það bara svo tilvalið af því að það er svo stórt. Pjé.


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 18:15:25 / Posi

HUGE

Mér finnst Stebbi stóri vera stór. Mér finnst Jón Stefán sem vinnur með mér vera stór. Mér finnst Egill Jónasson vera stór. Mér finnst Pétur Guðmundsson vera stór. En þeir eru litlir í samanburði við Kenny George.

Gaurinn er rúmir 230 cm á hæð, vænghafið er nálægt 250cm og hann notar skó nr.28. Nei ekki i íslenskum stærðum, Bandarískum. Til samanburðar notar Yao Ming skó nr. 18 og Shaq nr. 22. Ég nota skó nr. 11.

 http://www.nytimes.com/2008/01/09/sports/ncaabasketball/09asheville.html?_r=1&ref=ncaabasketball&oref=slogin

,,George’s body kept growing. By his senior year, his feet had grown beyond size 23, the largest athletic shoe made. In search of a size 25, VanderMeulen appealed to college and N.B.A. teams. Weeks later, Shaquille O’Neal sent several pairs of his size 22’s to Chicago. VanderMeulen shipped them to a New York City shoemaker who cut off the soles and toes and reshaped them into 25’s.

Asheville has a contract with Nike, which makes 12 pairs of size-26 shoes for George. They are the only shoes he wears.
"

Gleymdi að segja að gaurinn er að spila körfubolta á fullu. Hefur þó lent í hnjámeiðslum, kemur á óvart. Það kemur einnig á óvart að hann er með flest varin skot í öllum háskólaboltanum.

Hér eru tvö youtube vídjó af honum......

http://www.youtube.com/watch?v=g6Bk1tBYdXE

http://www.youtube.com/watch?v=MJLZP-rlznE

Þetta er alveg huge gaur. Framvegis verður Stebbi stóri kallaður Stebbi litli.

Kveðja P.


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 19:14:25 / Posi

American Gladiators

Ég er frekar ánægður þessa dagana. Komst að því að útí Bandaríkjunum eru þeir farnir að sýna American Gladiators á nýjan leik eftir 12 ára pásu. Þetta eru svo miklir snilldar þættir. Þetta var sýnt á Sýn back in da days þegar Sýn var að byrja. Ég var alltaf límdur við skjáinn enda eðalsjónvarpsefni.

 

 

Ég er nú þegar búinn að ná mér í fyrstu tvo þættina og þeir klikka sko ekki. Hulk Hogan og Laila Ali eru hosts og sjá um að halda hita í liðinu. Svo toppaði allt að fyrsti þátturinn var tvölfaldur og fékk ég því vænan skammt af American Gladiators í gær. Einn og hálfan tíma takk fyrir.

 

Gladiatorarnir eru alveg hrikalega sverir að vanda. Það er alveg pottþétt hvaða glatiator er í mestu uppáhaldi. Það er sko, hjá konunum, Hellga. Hún er agalega mikið tröll, 100 kíló af vöðvum og alls ekki slæmur kvennkostur þar á ferð, svo er nafnið á henni alveg lýsandi fyrir hana.

 

Hellga

 

Af karlmönnunum er Justice í uppáhaldi. 205 cm og 140 kg. Óhugnalegur vægast sagt. Svo er Wolf nokkuð svalur. Mér finnst einn þeirra samt alveg svaðallega ógeðslegur. Það er Titan, bara nafnið segir að hann er ekki svalur. Alltof kvennlegt andlit miðað við líkamann, ætti frekar heima í módelbransanum. Það er eins og hann sé klipptur út úr ofurhetju-teiknimynd. 

 

 

Það sést alveg greinilega á myndinni efst uppi hver er hvað. Titan er þessi kvenlegi, Justice er þessi megasvali, Wolf er sá sem lýtur út eins og úlfur og sá fjórði er Toa. Svo er skvísan Laila Ali.

 

Justice

 

Ég mæli eindregið með þessum þáttum. Þvílík snilld. Píz át. Pose.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 20